Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2006

ÞÚ ERT LÍKLEGA MÓÐIR...



...ef þú felur þig inni á baðherbergi til að geta verið ein smástund.

...ef þú hefur verið í jogginggalla alla helgina.

...ef fæturnir á þér festast í klístrinu á eldhúsgólfinu og þér er alveg
sama.

...ef það er líklegra að þú verðir fyrir eldingu en að þú fáir ótruflaðan 8
tíma svefn.

...ef þú hefur aðeins tíma til að raka annan fótlegginn í einu.

...ef þín skilgreining á góðum degi er að halda geðheilsunni

...ef þú þværð barninu í framan með munnvatnsbleyttum þumalfingrinum.

...ef þú gerir ósjálfrátt tvöfaldan hnút á allt sem þú hnýtir.

...ef þér finnst góð lyktin af soðnum gulrótum með eplamauki.

...ef þú ert farin að kaupa morgunkorn með sykurpúðum.

...ef þér tekst að setja ólíkar tegundir matvæla á disk, án þess að nokkrar
þeirra snertist.

...ef þú vonar að tómatsósa sé grænmeti, af því að það er það eina sem
barnið borðar. .

..ef þú byrjar alltaf á að skera matinn þinn í litla bita og leyfir öðrum
að borða af disknum þínum.

...ef þú segir setningar eins og: "ekki setja pastað í nefið á þér...!""

...ef þú telur nammið á hverjum kökubita svo allir fái jafnt.

...ef þú velur veitingastaði eftir gæðum barnamatseðilsins og dótinu sem
fylgir með.

...ef þú ferð á fætur kl 5:30 á hverjum degi, hefur ekki tíma til að borða
(hvað þá að drekka eða fara á klósettið) og samt tekst þér að þyngjast um 5
kíló!

...ef símtölin þín eru sífellt slitin í sundur af setningum eins og: "Ekki
skrifa á vegginn!" "Kötturinn er ekki leikfang!" "Nei, skrifborðið á ekki að
vera í sófanum!"

"Hættu að toga í hárið á systur þinni" "Bíddu aðeins á meðan ég næ í
þráðlausa símann, ég þarf að skipta á barninu/gefa barninu að borða/ finna
barnið!!"

...ef þú nærð að hlaupa í gegnum alla íbúðina (og um leið setja barnið í
stólinn sinn, hoppa yfir tvö öryggishlið, velta þremur taukörfum, hrasa um
leikfang, hundinn og bolta á ganginum) og svara símanum áður en kviknar á
símsvaranum. Um leið hefur þú öðlast réttindi til þáttöku í fjölþraut og átt
góða möguleika á að vinna gullið!

...ef þú hefur litlar áhyggjur af bauki og bramli, en fyllist skelfingu ef
allt er hljótt.

...ef þú heyrir rödd móður þinnar þegar þú segir: "Nei, ekki þegar þú ert í
sparifötunum!" .

...ef þú ert hætt að gagnrýna uppeldi móður þinnar á þér og syskinum þínum.

...ef þú ert farin að raula Disney-lög yfir uppvaskinu.

...ef þú færð barnapíu til að komast loksins út með manninum þínum og eyðir
svo hálfu kvöldinu í að athuga hvernig gangi heima.

...ef þú segir á hverjum degi: "Ég er ekki rétta manneskjan í þetta starf"
en myndir samt ekki vilja skipta um hlutverk við nokkurn annan.



EF KARLMENN GENGU MEÐ BÖRNIN?
Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár...

Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð...

Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni...

Væri morgunógleði talin helsta heilsuvandamál þjóðarinnar...

Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%...

Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á kopp...

Væru menn æstir í að binda sig...

Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum...

Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á kvöldin....

Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims...

Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina...

Myndu konur stjórna heiminum..

Engill í mannsmynd

Valgerður Einarsdóttir
Valgerður Einarsdóttir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 189

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband